Lúðvík Júlíus Jónsson, liðsstjóri U21 ára landsliðs karla, tók á dögunum þátt í sínum síðasta leik með liðinu þegar það mætti Spáni á Floridana vellinum.
Leikurinn gegn Spáni tapaðist 7-2 en Ísland endaði í fjórða sæti í sínum riðli í undankeppni EM 2019.
Leikurinn gegn Spáni tapaðist 7-2 en Ísland endaði í fjórða sæti í sínum riðli í undankeppni EM 2019.
Lúðvík hefur ákveðið að stíga til hliðar sem liðsstjóri U21 landsliðsins, en hann hefur gengt því starfi frá árinu 2008. Fyrsti leikur hans var 6. febrúar gegn Kýpur. Síðan þá hefur Lúðvík ekki misst úr leik og tekið þátt í 68 leikjum með liðinu.
Á þessum tíma hefur liðið náð flottum árangri og m.a. var hann partur af hópnum sem fór í lokakeppni EM 2011.
KSÍ þakkar Lúðvíki kærlega fyrir frábær störf.
— Albert Gudmundsson (@snjallbert) October 23, 2018
Frábær einstaklingur sem var alltaf til í að hjálpa og nærvera hans afar notaleg. Takk fyrir góða tíma Lúðvík https://t.co/gzJOW9khvz pic.twitter.com/Yk7mMItqk1
— Oliver Sigurjónsson (@OSigurjonsson) October 23, 2018
Athugasemdir