Átta mörk koma til greina sem mark október mánaðar í ensku úrvalsdeildinni hjá Sky Sports.
Gylfi Þór Sigurðsson á eitt af mörkunum en um er að ræða glæsilegt langskot hans í sigri Everton á Leicester.
Aðrir leikmenn sem koma til greina eru David Brooks (Bournemouth), Patrick van Aanholt (Crystal Palace), Aaron Ramsey (Arsenal), Andre Schurrle (Fulham), Riyad Mahrez (Manchester City), Pierre-Emerick Aubameyang (Arsenal) og Granit Xhaka (Arsenal).
Lesendur Sky Sports velja mark mánaðarins og þegar þetta er skrifað er Gylfi efstur með 29% atkvæða, en Aaron Ramsey er næstur með 27%.
Smelltu hér til að kjósa
Athugasemdir