Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. nóvember 2018 16:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Komast ekki með tærnar þar sem Jóhann Berg hefur hælana
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er gífurlega mikilvægur fyrir Burnley og það sannar tölfræðin.

Burnley er að gera 1-1 jafntefli gegn West Ham en Jóhann Berg skoraði mark Burnley stuttu fyrir leikhlé eftir að Marko Arnautovic hafði komið West Ham yfir.

Þetta er annað deildarmark Jóhanns Bergs á tímabilinu en síðan í byrjun síðasta tímabils kemst enginn leikmaður Burnley með tærnar þar sem Jóhann Berg hefur hælana.

Jóhann hefur komið beint að 16 mörkum í ensku úrvalsdeildinni (4 mörk og 12 stoðsendingar). Næsti leikmaður Burnley hefur komið að 11 mörkum, fimm færri en Jóhann Berg.

Smelltu hér til að sjá markið hjá Jóa Berg.



Athugasemdir
banner
banner