fös 09. nóvember 2018 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fjórir framlengja við Aftureldingu
Loic Ondo, Kristján Marteinsson, Viktor Marel Kjærnested og Sigurður Kristján Friðriksson framlengdu við Aftureldingu
Loic Ondo, Kristján Marteinsson, Viktor Marel Kjærnested og Sigurður Kristján Friðriksson framlengdu við Aftureldingu
Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla
Loic Ondo, Sigurður Kristján Friðriksson, Kristján Atli Marteinsson og Viktor Marel Kjærnested hafa framlengt samninga sína við Aftureldingu.

Leikmennirnir voru allir hluti af liði Aftureldingar sem vann 2. deildina í sumar og spilar því í Inkasso-deildinni næsta sumar.

Ondo, sem er varnarmaður, var meðal annars valinn í lið ársins í 2. deild í vali fyrirliða og þjálfara í deildinni.

„Allir leikmennirnir hafa augljóslega mikla trú á því uppbyggingarstarfi sem í gangi er og skrifuðu undir tveggja ára samninga við félagið," segir á Facebook síðu Aftureldingar.

„Afturelding fagnar undirskriftum þessara öflugu leikmanna og er enn frekari frétta er að vænta af samningamálum á næstunni."

Afturelding fékk liðsstyrk í vikunni þegar Ragnar Már Lárusson og Trausti Sigurbjörnsson komu til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner