Ævintýri Andra Rúnars Bjarnasonar heldur áfram en hann er að koma úr frábæru tímabili með Helsingborg. Hann hjálpaði liðinu upp og varð markahæstur í sænsku B-deildinni.
Andri var svo kallaður inn í íslenska landsliðshópinn um helgina og er mættur til æfinga í Belgíu þar sem Ísland mætir heimamönnum í Þjóðadeildinni og svo Katar í vináttulandsleik.
Andri var svo kallaður inn í íslenska landsliðshópinn um helgina og er mættur til æfinga í Belgíu þar sem Ísland mætir heimamönnum í Þjóðadeildinni og svo Katar í vináttulandsleik.
„Síðustu tvö ár hafa verið eitt stórt ævintýri og þessi helgi verið rosaleg. Ég er enn aðeins uppi í skýjunum," segir sóknarmaðurinn.
„Það dreymir alla um að spila fyrir landsliðið. Að fá að vera hluti af þessum hópi er heiður."
Andri, sem er frá Bolungarvík, hefur verið að fá einstaklingsverðlaun, og var meðal annars valinn bestur í Helsingborg.
„Verðlaunaskápurinn er að fyllast fyrir vestan. Mamma og pabbi geyma þetta fyrir mig!"
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar segir Andri meðal annars frá því þegar hann var kallaður inn í landsliðið.
Athugasemdir