Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 13. nóvember 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Kewell rekinn frá Notts County eftir fjórtán leiki
Búið spil.
Búið spil.
Mynd: Getty Images
Notts County hefur ákveðið að reka Harry Kewell úr starfi knattspyrnustjóra.

Kewell stýrði Crawley Town í ensku D-deildinni á síðasta tímabili en í ágúst hætti hann til að taka við Notts County.

Sú ákvörðun reyndist ekki farsæl því Ástralinn hefur nú verið rekinn eftir einungis fjórtán leiki í starfi.

Notts County er í 22. sæti af 24 liðum í ensku D-deildinni en gömlu félagar Kewell í Crawley eru í 12. sæti.

Kewell er fyrrum leikmaður Liverpool og Leeds en hann lagði skóna á hilluna árið 2014 og var í kjölfarið ráðinn þjálfari hjá U23 ára liði Watford.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner