Marouane Fellaini á afmæli á morgun og er búinn að raka af sér hárið í tilefni þess.
Fellaini hefur lengi verið frægur fyrir að skarta svakalegri hárgreiðslu en hann virðist nánast óþekkjanlegur á nýjustu myndinni sinni á Instagram.
Fellaini er landsliðsmaður Belgíu en verður ekki með í næsta leik, sem er gegn Íslandi, vegna meiðsla.
Fellaini leikur fyrir Man Utd og á næst leik með liðinu 24. nóvember, gegn Crystal Palace.
New year, new look #birthdaytomorrow pic.twitter.com/TYN3Ag0ObR
— Marouane Fellaini (@Fellaini) November 14, 2018
Athugasemdir