Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City á Englandi, er á leið í aðgerð á hné. Þetta kemur fram á Sky Sports í kvöld.
Þessi 24 ára vinstri bakvörður missti af sjö mánuðum á síðasta tímabili með City er liðið varð Englandsmeistari og nú er útlit fyrir að hann missi af næstu leikjum liðsins.
Mendy var í franska landsliðshópnum sem var tilkynntur á dögunum en hann þurfti að draga sig úr honum til þess að fara undir hnífinn í Barcelona.
Hann fer í aðgerð á hné og óljóst er hversu lengi hann verður frá en hann verður þó ekki leikfær fyrr en eftir áramót.
Mendy hefur spilað 12 leiki fyrir City á þessu tímabili og var meðal annars í liðinu sem vann Manchester United 3-1 á dögunum.
Athugasemdir