banner
   fim 15. nóvember 2018 16:00
Arnar Helgi Magnússon
Áhugaverður samanburður á Van Dijk og Sol Bamba
Mynd: GiveMeSport
Virgil Van Dijk hefur verið stórkostlegur í upphafi leiktíðar með Liverpool og af mörgum talinn púsluspilið sem vantaði í liðið.

Varnarleikur Liverpool hefur verið frábær en liðið hefur einungis fengið á sig fimm mörk í ensku úrvalsdeildinni, jafnmörg og Manchester City.

Sol Bamba er leikmaður Cardiff City og hefur svolítið siglt undir radarinn en sá hefur staðið sig vel.

Bamba hefur byrjað ellefu leiki í úrvalsdeildinni á tímabilinu, skorað tvö mörk og lagt upp eitt.

Ef tölfræði á milli þessa tveggja frábæru varnarmanna er skoðuð kemur það í ljós að Bamba hefur staðið sig betur í öllum þeim þáttum sem eru skoðaðir.

Til að mynda hefur Bamba unnið tæplega helmingi fleiri tæklingar ásamt því að hafa unnið fleiri skallaeinvígi.

Samanburð leikmannana má sjá hér til hliðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner