Atli Arnarson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við HK en þetta kemur fram á vef félagsins í kvöld.
Fótbolti.net greindi frá því á dögunum að Atli væri á leið til félagsins en það fékkst staðfest í kvöld.
Atli, sem er 24 ára gamall, hefur leikið síðustu tvö tímabil með ÍBV og á hann að baki 51 leik og 1 mark í efstu deild. Hann er uppalinn á Sauðárkróki þar sem hann spilaði fyrir Tindastól en hann hefur einnig leikið með Leikni R.
Hann nýtti sér uppsagnarákvæði í samning sínum við ÍBV og var því frjálst að semja við önnur félög.
Hann gerði tveggja ára samning við HK en félagið mun spila í Pepsi-deildinni á næsta tímabili.
Árni bróðir hans hefur leikið fyrir HK síðustu fimm ár en hann er 26 ára gamall.
Athugasemdir