Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. nóvember 2018 23:17
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Cavani straujaði Neymar í vináttulandsleik
Það var mikill hiti í Edinson Cavani
Það var mikill hiti í Edinson Cavani
Mynd: Getty Images
Það er nú orðið morgunljóst að Edinson Cavani og Neymar, leikmenn Paris Saint-Germain, þola ekki hvorn annan en þeir spiluðu báðir er Brasilía vann Úrúgvæ 1-0 í vináttuleik í kvöld.

Neymar samdi við PSG árið 2017 fyrir metfé en þá var Edinson Cavani aðalvítaskytta franska liðsins og þeir sterkasti leikmaður.

Þegar Neymar mætti féll hann í skuggann á honum og þá rifust þeir um að taka vítaspyrnu gegn Dijon sem endaði með því að Daniel Alves þurfti að grípa inn í.

Cavani sást ekki í afmælisveislu brasilíska kappans á síðasta ári og nú birtist enn eitt atvikið sem sýnir augljóslega að það er mikill fjandskapur á milli þeirra.

Cavani ákvað að strauja Neymar í vináttulandsleiknum í kvöld og fékk spjald fyrir það. Neymar virtist sárþjáður og fussaði bara yfir því er Cavani ætlaði að rétta honum hjálparhönd.

Það má þá fylgja sögunni að Neymar gerði sigurmark Brasilíu í leiknum en það kom úr vítaspyrnu.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner