Ítölsku félögin AC Milan og Juventus fylgjast grannt með stöðu Fabinho hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool en ítalskir miðlar greina frá þessu í dag.
Liverpool keypti Fabinho frá Mónakó í sumar en hann hefur átt í erfiðleikum með að koma sér inn í liðið. Hann hefur aðeins spilað átta leiki til þessa og eru félög farin að fylgjast með stöðu hans.
Samkvæmt Mediaset þá hefur AC Milan gríðarlega mikinn áhuga á Fabinho auk þess sem Juventus hefur fylgst með honum.
Liðin eru bæði í leit að miðjumönnum. Lucas Biglia og Giacomo Bonaventura eru meiddir og þá er Emre Can meiddur hjá Juventus.
Athugasemdir