Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. nóvember 2018 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Asensio á förum frá Real Madrid?
Marco Asensio
Marco Asensio
Mynd: Getty Images
Marco Asensio, leikmaður Real Madrid á Spáni, vill yfirgefa félagið og semja við ítalska félagið Juventus. Tuttosport greinir frá þessu.

Asensio sem er einn efnilegasti miðjumaður heims hefur verið í aukahlutverki hjá Madrídingum síðustu tvö árin en gæti fengið stærra hlutverk hjá Juventus.

Það heillar Asensio að spila aftur með Cristiano Ronaldo og þá hefur hann rætt við Alvaro Morata, framherja Chelsea, um það hvernig var að búa á Ítalíu.

Tuttosport segir að Asenso sé hrifinn af hugmyndinni að vaxa hjá Juventus en hann horfir þar á dæmi á borð við Morata og Paul Pogba, sem blómstruðu undir Allegri og auðvitað Antonio Conte.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner