Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. nóvember 2018 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Giggs: Stoltur af strákunum
Ryan Giggs er þjálfari Wales
Ryan Giggs er þjálfari Wales
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs, þjálfari velska landsliðsins, var stoltur þrátt fyrir 2-1 tap liðsins gegn Dönum í Þjóðadeildinni í gær.

Danska liðið komst tveimur mörkum yfir í leiknum áður en Gareth Bale minnkaði muninn undir leikslok.

Þetta var alger úrslitaleikur um sæti í A-deildinni en Danir höfðu betur og spila þar í næstu keppni. Wales heldur sæti sínu í B-deildinni.

„Ég er stoltur af strákunum því þeir börðust allan tímann og þeir náðu að heilla mig og stuðningsmennina upp úr skónum," sagði Giggs.

„Ég hef notið þess að vera í Þjóðadeildinni. Þetta hafa verið góðir leikir og við hefðum getað unnið þetta í síðasta leik en svona er þetta," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner