Jordan Henderson, leikmaður enska landsliðsins, segir að liðið vilji hefna fyrir undanúrslitaleikinn á HM í sumar er liðið mætir Króatíu í Þjóðadeildinni á morgun.
Króatíska liðið henti Englendingum úr leik í undanúrslitum á HM í sumar en liðið hafði betur í framlengingu.
Henderson segir að leikmenn enska landsliðsins eru mjög vel gíraðir fyrir leikinn og að þeir ætli að hefna fyrir tapið.
Enska liðið gerði markalaust jafntefli við Króatíu í fyrri leiknum í Rijeka en nú vilja leikmennirnir taka sigur á Wembley.
„Þessi ósigur mun alltaf lifa með okkur. Það var í undanúrslitum á HM en við höfum þroskast mikið síðan þá," sagði Henderson.
„Við verðum að halda áfram að skapa hluti á sunnudag," sagði hann í lokin.
Athugasemdir