Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. nóvember 2018 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikur: ÍR með sigur - Ingólfur skoraði fyrir ÍBV
Ingólfur skoraði fyrir ÍBV.
Ingólfur skoraði fyrir ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 3 - 1 ÍBV
0-1 Ingólfur Sigurðsson
1-1 Gunnar Óli Björgvinsson
1-2 Alexander Kostic (víti)
1-3 Markaskorara vantar

Það fór fram æfingaleikur á ÍR-velli í gær þegar ÍR fékk ÍBV í heimsókn.

Ingólfur Sigurðsson, sem hefur verið að æfa með ÍBV, kom Vestmannaeyingum í forystu en ÍR-ingar komu til baka og unnu að lokum 3-1 sigur.

Bæði lið skiptu nánast um lið í leikhléi.

Pedro Hipolito, fyrrum þjálfari Fram, tók við ÍBV eftir síðasta tímabil. ÍBV endaði í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar en ÍR féll úr Inkasso-deildinni og mun spila í 2. deild á næstu leiktíð.

Sjá einnig:
Ingólfur í ÍBV?

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner