Arsene Wenger spjallaði við beIN á dögunum og barst talið að rennilásnum fræga á ofursíða Arsenal úlpunni sem hann klæddist oft á leikjum yfir veturna.
Barátta Wenger við rennilásinn var spaugileg og hefur Frakkinn húmor fyrir þessu sjálfur.
„Ég bætti mig reyndar með tímanum," svaraði Wenger í gríni.
„Ég var meðvitaður um þetta allan tímann. Þessar úlpur voru alltof síðar og stundum virkar rennilásinn ekki nógu vel. Ég lenti í miklum erfiðleikum með hann.
„Fólk var að tala um þetta þannig ég var mjög meðvitaður um að það væri verið að fylgjast með mér."
Athugasemdir