Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 19. nóvember 2018 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Casemiro missir af leiknum gegn Roma
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro tognaði á ökkla í 2-4 sigri gegn Celta Vigo og verður því frá í mánuð.

Hann mun því missa af mikilvægum leik gegn Roma í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Casemiro hefur verið algjör lykilmaður í liði Real Madrid undanfarin ár og unnið Meistaradeildina fjórum sinnum á síðustu fimm árum.

Real Madrid heimsækir Ólympíuleikvanginn í Róm 27. nóvember og eru liðin að keppa úrslitaleik um toppsæti riðilsins. Real vann heimaleikinn 3-0 en tapaði svo á útivelli gegn CSKA Moskvu.

Dani Ceballos er líklegastur til að fylla í skarðið og mynda öfluga miðju ásamt Toni Kroos og Luka Modric.
Athugasemdir
banner
banner
banner