Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, sparaði ekki hrósið á Harry Kane eftir 2-1 sigurinn á Króatíu í gær.
Kane, sem er fyrirliði enska landsliðsins skoraði sigurmarkið undir lokin og tryggði liðinu um leið sæti í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar.
Þetta var fyrsta mark Kane með enska landsliðinu í átta leikjum en Southgate tók upp hanskann fyrir hann eftir leik.

„Hann er besti markaskorari í heimi," sagði Southgate ákveðinn eftir leik.
„Hann er aðalvítaskytta okkar, leiðtogi og hann er mikilvægur í spilinu hjá okkur. Við höfum mikla trú á honum og hann er hungraður í að leiða liðið lengra."
Athugasemdir