Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 19. nóvember 2018 10:11
Magnús Már Einarsson
Silfurskeiðin óskar eftir að fá Gary Martin
Gary Martin.
Gary Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Silfurskeiðin, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem óskað er eftir að Stjarnan gangi frá samningum við enska framherjann Gary Martin.

Gary gæti verið á förum frá norska félaginu Lilleström en hann greindi frá því í samtali við Fótbolta.net

Opinber yfirlýsing varðandi framtíð Gary Martin
Í fortíðinni höfum við, stuðningsmenn, alltaf verið opnir fyrir sögusögnum um að fá refinn til félagsins.

Markavél og frábær karakter.

Við erum nú þegar með hágæða breidd í hópnum, sérstaklega fram á við, en metnaður Stjörnunnar til að ná velgengni getur sýnt sig ennþá meira með því að ná í markavél með svona karakter.

Miðað við orðróm um hugsanleg félagaskipti þá krefst Silfurskeiðin þess að stjórnin láti þetta enda vel.

Vertu velkominn, Gary Martin
Athugasemdir
banner
banner