Paul Gascoigne, fyrrum landsliðsmaður Englands, hefur verið ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart konu.
Atvikið átti sér stað í lest þann 20. ágúst og var Gascoigne, sem er 51 árs, handtekinn á Durham lestarstöðinni.
Gascoigne er sakaður um að hafa káfað á konunni og þarf að mæta fyrir dómstóla þann 11. desember.

Gascoigne lék á sínum tíma 57 landsleiki fyrir England en hefur lengi verið að berjast við áfengisvandamál og stundum verið nær dauða en lífi vegna fíkninnar.
Athugasemdir