Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. nóvember 2018 15:30
Arnar Helgi Magnússon
Guendouzi ánægður með byrjun sína hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Matteo Guendouzi var á dögunum valinn í fyrsta skipti í U21 árs landsliðs Frakklands.

Guendouzi kom til Arsenal frá Lorient í frönsku B-deildinni í sumar en kaupverðið var talið vera um átta milljónir punda.

„Ég er mjög ánægður með þessa byrjun. Það sem mér finnst mikilvægast að við erum búnir að spila fimmtán eða sextán leiki í röð án þess að tapa. Við erum fókuseraðir að halda því áfram," segir Guendouzi.o

„Við erum búnir að gera jafntefli í síðustu þremur leikjum í deildinni en ég hef ekki áhyggjur af því. Ég vona að við getum gert frábæra hluti."

Guendouzi er ánægður með leikmannahópinn.

„Hópurinn er mjög samheldinn og ég held að það sé ein af stóru ástæðunum fyrir þessu góða gengi. Það eru engar klíkur eða neitt, það sést á vellinum."

Guendouzi er búin að spila fimmtán leiki á leiktíðinni og skora eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner