Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 19. nóvember 2018 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ramos „lækaði" mynd af grátandi Lovren
Mynd: Getty Images
Varnarmennirnir Dejan Lovren og Sergio Ramos eru langt frá því að vera einhverjir perluvinir.

Ramos er ekki vinsæll hjá Liverpool-mönnum eftir að Mohamed Salah fór meiddur af velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir viðskipti við hann.

Lovren lét Ramos heyra það í síðustu viku eftir sigur Króatíu á Spáni. „Ég náði að gefa honum gott olnbogaskot," sagði Lovren sem hélt beina útsendingu á Instagram eftir leikinn. Hann virtist nokkuð ánægður með gjörðir sínar.

Ramos virðist hafa svarað Lovren á óbeinan hátt en hann „lækaði" mynd á Instagram af þeim félögum.

Á myndinni heldur Ramos á Meistaradeildarbikarnum en Lovren er grátandi eftir að hafa tapað úrslitaleiknum.

Hér að neðan er myndin sem Ramos „lækaði." Þetta er líklega ekki það síðasta sem mun gerast í samskiptum þeirra.



Athugasemdir
banner