Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 20. nóvember 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool gæti kallað Woodburn til baka
Woodburn í leik með Sheffield United.
Woodburn í leik með Sheffield United.
Mynd: Getty Images
Liverpool er að íhuga að kalla Ben Woodburn til baka úr láni í janúar næstkomandi.

Woodburn fór til Sheffield United á láni í sumar en hefur lítið komið við sögu hjá liðinu á þessu tímabili.

Hinn 19 ára gamli Woodburn var ekki í leikmannahópi Sheffield United í síðasta leik gegn Sheffield Wednesday.

Woodburn var tekinn af velli í hálfleik gegn Norwich 18. ágúst síðastliðinn en síðan þá hefur hann einungis spilað 28 mínútur með Sheffield United.

Woodburn hefur undanfarin ár verið einn af efnilegri leikmönnum Liverpool en hann er í landsliði Wales. Liverpool telur að hann eigi skilið að fá fleiri tækifæri og því gæti liðið kallað hann til baka.
Athugasemdir
banner