Stjarnan vann fyrsta leik sinn í Bose-mótinu í gær er liðið tók Víking Reykjavík 5-0.
Víkingur tapaði 8-2 í fyrsta leik sínum í mótinu og virtist ástandið á þeim svipað gegn Stjörnunni.
Hilmar Árni Halldórsson skoraði tvö mörk fyrir Stjörnumenn en þá skoruðu einnig þeir Þorsteinn Már Ragnarsson, Jósef Kristinn Jósefsson og Tristan Freyr Ingólfsson.
Stjörnumenn spila við KR um sæti í úrslitaleik mótsins á þriðjudag.
Hægt er að sjá myndir úr leiknum hér fyrir neðan en Hafliði Breiðfjörð tók myndirnar.
Athugasemdir