Manchester United gæti reynt að kaupa varnarmanninn Nikola Milenkovic frá Fiorentina í janúar. Sky á Ítalíu greinir frá þessu.
Hinn 21 árs gamli Milenkovic er fastamaður í vörn Fiorentina auk þess sem hann er serbneskur landsliðsmaður.
Hinn 21 árs gamli Milenkovic er fastamaður í vörn Fiorentina auk þess sem hann er serbneskur landsliðsmaður.
Manchester United hefur fengið 21 mark á sig í tólf leikjum í ensku úrvalsdeildinni í vetur og Jose Mourinho vill fá nýjan varnarmann til félagsins.
Mourinho vill reyna við Milenkovic í janúar en hann gæti þó einnig komið til félagsins næsta sumar.
Manchester United þema var í hlaðvarpsþættinum Miðjunni á Fótbolta.net í dag en þar var meðal annars farið yfir varnarleik liðsins.
Smelltu hér til að hlusta á Manchester United spjall í Miðjunni
Athugasemdir