Markvörðurinn Halldór Páll Geirsson gerði í dag nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt ÍBV.
Halldór Páll rifti á dögunum samningi sínum við ÍBV og skoðaði sig um. Á endanum ákvað hann hins vegar að krota undir nýjan samning í Eyjum.
Halldór Páll rifti á dögunum samningi sínum við ÍBV og skoðaði sig um. Á endanum ákvað hann hins vegar að krota undir nýjan samning í Eyjum.
„Ég talaði við stjórnina og þjálfarann í nokkur skipti og þau náðu að sannfæra mig um að taka allavega tímabil í viðbót þar," sagði Halldór Páll við Fótbolta.net í dag
Halldór fór til danska félagsins Lyngby til reynslu á dögunum og gekk vel. Hann er ekki með samningstilboð þaðan en ef Lyngby býður honum samning á hann kost á að taka því tilboð. Þetta staðfesti Halldór við Fótbolta.net í dag.
Halldór Páll spilaði 16 leiki í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar og var valinn mikilvægastur hjá ÍBV á tímabilinu.
ÍBV fékk á dögunum portúgalska markvörðinn Rafael Veloso í sínar raðir. Markvörðurinn Derby Carillo, sem var hjá ÍBV í fyrra, er hins vegar farinn frá félaginu.
Athugasemdir