Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 05. júlí 2005 17:50
Hafliði Breiðfjörð
Ian Rush í viðtali: Nöfn nokkurra sem koma:
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjöldi stórstjarna úr enska boltanum mun leika í stórmóti í Egilshöll í nóvember næstkomandi í mótinu Football & fun sem er haldið á vegum Ian Rush og Icelandair. Við hittum Ian Rush í dag og ræddum við hann um mótið og fengum að vita nöfn nokkurra leikmanna sem munu leika á mótinu.

,,Við fengum hugmyndina að þessu móti fyrir rúmu ári síðan. Ég hef komið hingað í nokkur ár og hugmyndin hafði upprunalega verið að halda mótið í apríl en það náðist ekki að láta það ganga upp," sagði Rush.

Sögur hafa heyrst af slíku móti allt frá árinu 2002 þegar fréttir birtust fyrst af því hér á Fótbolti.net. Hugmyndin að mótinu eins og það er nú er hinsvegar mun nýrri af nálinni:

,,Þetta er mín hugmynd í samstarfi við Icelandair sem vildu bæta Ísland í nóvember og höfðu margar hugmyndir. Ég nefndi Masters mótið sem hefur verið í gangi á Englandi í sjö, átta ár eða lengur. Þessir gömlu leikmenn dýrka það að spila á því móti og hugmyndin er unnin út frá því," bætti hann við.

Ian Rush hefur verið Íslandsvinur í nokkur ár en fyrir nokkrum árum stjórnaði hann knattspyrnuskóla hér á landi fyrst í samvinnu við Þrótt og svo síðar í samstarfi við Fylkismenn.  En afhverju valdi hann Ísland sem áfangastað fyrir mótið?

,,Ég valdi Ísland því ég hef gott samband við Icelandair og ég hef komið hingað í nokkur ár og mér líkar við fólkið hérna sem er mjög vingjarnlegt. Íslendingar eru að reyna að bæta fótboltann hérna og ég tel að þetta sé land sem er í mikilli uppsveiflu útfrá því hversu vingjarnlegt fólkið er hérna fannst mér tilvalið að koma hingað og skemmta þeim."

Ljóst er að fjöldi stórstjarna er á leið hingað til lands til að spila fótbolta og menn geta borið stjörnur enskra liða augum.   Lið frá Liverpool, Manchester United og Arsenal koma hingað til lands en sú spurning sem brennur á vörum allra er hvaða leikmenn eru þetta sem hingað koma, við spurðum Rush að því.

,,Ég mun verða fyrirliði Liverpool liðsins og þarna verða menn eins og John Barnes, Jan Mölby. Þetta snýst um að velja þá réttu sem einnig geta gefið kost á sér og vilja koma. Hjá Manchester United verða Dennis Irwin og Micky Thomas og þeir sjá um að velja sitt lið. Hjá Arsenal verður það Kenny Samson sem mun velja liðið. Þetta verða stórir leikmenn og ef þeir geta gefið kost á sér þá held ég að 99% þessara gömlu leikmanna muni vilja koma því þeir njóta þess að spila fótbolta."

,,Þessir leikmenn sem ég nefndi munu koma á þetta mót og John Barnes spilaði mót fyrir tveimur vikum og viðbrögðin sem ég hef fengið frá leikmönnunum eru frábær. Nú er bara að sjá hvort þeir geti komið. John Barnes og Jan Mölby munu verða hérna auk sumra stóru stjarnanna líka.  Mitt starf verður að manna Liverpool liðið. Kenny mun sjá um Arsenal liðið og Dennis og Micky munu svo sjá um Manchester United liðið."

Endanleg nöfn liggja þó ekki fyrir strax en þegar þau liggja fyrir mun verða hægt að lesa þau hér á Fótbolti.net því við ætlum að reyna að fylgjast mjög vel með mótinu.

,,Eftir nokkrar vikur munum við birta nöfnin staðfest á netinu. Við viljum fá þau staðfest. Sjáum fyrst hverjir geta komið og staðfestum það svo. Á næstu vikum munum við verða komnir með öll nöfnin í liðin þrjú."
Slapp
banner
banner