Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 06. desember 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Pele segist hafa verið miklu betri en Messi
Lætur í sér heyra.
Lætur í sér heyra.
Mynd: Getty Images
Gamla kempan Pele segir að þeir sem segja að Lionel Messi sé besti leikmaður sögunnar séu á villigötum. Pele segist sjálfur hafa verið miklu betri en Messi.

„Hvernig ætlar þú að bera saman leikmann sem var góður skallamaður, sparkaði með vinstri og hægri saman við einhvern sem notar bara einn fót, er bara með einn ákveðinn hæfileika og er ekki góður í að skalla?" sagði Pele.

„Til að bera leikmann saman við Pele þarf þarf það að vera einhver sem er góður með báðum fótum og skorar með skalla."

„Að mínu mati var Maradona einn af bestu leikmönnum sögunnar og hann var miklu betri en Messi."

Athugasemdir
banner
banner
banner