Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. desember 2018 05:56
Brynjar Ingi Erluson
Ísland um helgina - KR og Breiðablik mætast í úrslitum Bose-mótsins
KR-ingar hafa spilað vel í Bose-mótinu
KR-ingar hafa spilað vel í Bose-mótinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einn leikur fer fram um helgina í íslenska boltanum en KR og Breiðablik mætast í úrslitum Bose-mótsins.

KR vann Stjörnuna og Víking á leið sinni í úrslitaleikinn á meðan Breiðabli vann HK og FH.

Bæði lið hafa spilað afar vel en úrslitaleikurinn fer fram í Fífunni á morgun klukkan 11.

HK tók þriðja sætið í mótinu með því að leggja Stjörnuna í vítakeppni í gær og þá mætast FH og Víkingur í leik um fimmta sætið á miðvikudag.

Leikur helgarinnar:

Laugardagur:
11:00 Breiðablik - KR (Fífan)
Athugasemdir
banner