Ryan Fraser, kantmaður Bournemouth, er stoðsendingahæstur í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann hefur lagt upp sjö mörk og skorað fjögur til viðbótar.
Fraser segir að lykillinn að spilamennsku sinni sé sú að hann reyni að fara pressulaust í leiki og ímynda sér að hann sé að spila með vinum sínum.
Fraser segir að lykillinn að spilamennsku sinni sé sú að hann reyni að fara pressulaust í leiki og ímynda sér að hann sé að spila með vinum sínum.
„Ég hef breytt hugarfari mínu á þessu tímabili. Önnur tímabil hafa snúist um að læra og ég er ennþá að læra en ég var oft of mikið að pæla í mörkum og stoðsendingum," sagði Fraser.
„Ég var farinn að ofhugsa þetta og gera mistök sem ég myndi vanalega ekki gera."
„Á þessu tímabili ef ég reynt að njóta fótboltans og það er kannski auðvelt að segja það en ég fer út á völl og reyni að hugsa að ég sé að fara að spila fótbolta með vinum mínum. Ég spila fótbolta eins og ég hef elskað allt mitt líf og þá kemur frammistaðan."
Athugasemdir