Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 07. desember 2018 17:06
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Chelsea og Man City
Mynd: Guardian
Jorginho og David Luiz voru báðir ónotaðir varamenn í tapleiknum gegn Wolves og verða væntanlega í byrjunarliði Chelsea gegn Manchester City á morgun.

Leikurinn hefst klukkan 17:30 á morgun.

Ross Barkley er orðinn leikfær á ný eftir að hafa verið að glíma við ökklameiðsli.

Sergio Aguero, markahrókur Manchester City, mun missa af þriðja leiknum í röð vegna vöðvavandamála.

Oleksandr Zinchenko er tæpur vegna meiðsla og þá kemur leikurinn of snemma fyrir Kevin De Bruyne sem ekki er orðinn leikfær.

Manchester City er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 41 stig, tveimur stigum á undan Liverpool.

Chelsea er í fjórða sætinu, tíu stigum frá City.
Athugasemdir
banner