Það fossaði ekki bara blóð í bardaga Gunnars Nelson um helgina því Lucas Perez framherji West Ham missti meira blóð en hann kærði sig um í leiknum gegn Crystal Palace á laugardaginn.
Spænski framherjinn var í byrjunarliði West Ham sem vann 3-2 sigur á Lundúnarleikvangnum.
Hann varð hinsvegar að yfirgefa völlinn í hálfleik þegar skórinn hans var alblóðugur og þegar hann fór úr honum sást gat á ristinni.
Perez var ekkert að fela meiðslin því hann póstaði meðfylgjandi mynd hér að neðan á samfélagsmiðilinn Twitter með hefðbundnum skilaboðum. „Ánægður með siguirnn en leiðinlegt að geta ekki haldið áfram að hjálpa liðinu."
Happy for the win and regretting not being able to continue helping the team ⚒ #COYI pic.twitter.com/dQEvTN0kSn
— Lucas Pérez (@LP10oficial) December 8, 2018
Athugasemdir