Bjarni Bendiktsson, fjarmálaráðherra, var einn af þeim sem tóku þátt í úrslitaleik Tommamótsins í Egilshöll í gær en um var að ræða styrktarleik fyrir Tómas Inga Tómasson.
Bjarni varð fyrir því óláni að togna aftan í læri þegar hann reyndi að elta söngvarann Hreim Örn Heimisson í leiknum.
Hjörvar Hafliðason birti mynd af atvikinu á Twitter og spurði Bjarna frænda sinn út í stöðuna.

„Takk, eftir atvikum sæmilegur. Þetta lagast á nokkrum vikum. Það er svo sem ekki eins og það sé leikur um næstu helgi," sagði Bjarni léttur en myndbandið má sjá hér að neðan.
Þau sem komust ekki á leikinn en vilja styrkja verkefnið geta lagt inn á reikning 528-14-300 kt. 070669-4129. Frjáls framlög.
Sjá einnig:
Myndaveisla: Eiður kom beint úr flugi og Bjarni Ben tognaði
Takk, eftir atvikum sæmilegur. Þetta lagast á nokkrum vikum. Það er svo sem ekki eins og það sé leikur um næstu helgi.
— Bjarni Benediktsson (@Bjarni_Ben) December 9, 2018
Athugasemdir