Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun dæma leik Dynamo Kiev og Jablonec í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í Úkraínu á fimmtudaginn.
Gylfi Már Sigurðsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson verða aðstoðardómarar.
Ívar Orri Kristjánsson og Þóroddur Hjaltalín verða sprotadómarar en sá síðarnefndi ákvað eftir sumarið að leggja flautuna á hilluna og þetta verður síðasti leikur hans í dómarabúningi.
Birkir Sigurðarson verður síðan fjórði dómari.

Dynamo Kiev er nú þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum en Jablonec frá Tékklandi er á botni riðilsins.
Athugasemdir