AC Milan átti í viðræðum um að fá Zlatan Ibrahimovic á láni frá LA Galaxy en nú er ljóst að ekkert verður af samningum.
Hinn 37 ára gaamli Zlatan vann Serie A með AC Milan árið 2011 en hann skoraði 50 mörk á tveimur tímabilum með liðinu.
„Hann lofaði Galaxy að hann yrði áfram ef þeir myndu standa við samninga og þeir gerðu það," sagði Leonardo, yfirmaður íþróttamála hjá AC Milan.
„Þetta hefði verið alvöru ástarsaga því hann hefði gefið liðinu mikið."
„Við getum ekki neitað því að báðir aðilar hugsuðu út í þennan möguleika en þetta verður ekki að veruleika."
Athugasemdir