Everton er þessa stundina að tapa 2-1 fyrir Watford á Goodison Park en allt breyttist á nokkrum mínútum.
Richarlison kom Everton yfir í leiknum en sjálfsmark frá Seamus Coleman á 63. mínútu og mark Abdoualaye Doucoure tveimur mínútum síðar gjörbreytti leiknum.
Everton fékk gullið tækifæri til að jafna metin en Ben Foster varði frá honum. Þetta er annað vítið á tímabilinu sem Gylfi klúðrar en það má sjá hér fyrir neðan.
Gylfi er sérfræðingur í föstum leikatriðum og hefur reynst öflugur á vítapunktinum síðustu ár og því nokkuð óvenjulegt. Hægt er að sjá spyrnuna hér fyrir neðan.
SMELLTU HÉR til að sjá svipmyndir úr leiknum á Vísi - Þar á meðal vítaklúðrið.
Athugasemdir