Margrét Lára Viðarsdóttir er mætt aftur á völlinn eftir langa fjarveru en hún skoraði tvö mörk í 5-0 sigri Vals á ÍA í æfingaleik í kvöld.
Margrét Lára, sem er markahæsta landsliðskona Íslandi frá upphafi, en hún meiddist í lok maí árið 2017 og sleit þá krossband.
Hún hefur verið frá síðustu 18 mánuði vegna meiðsla en var mætt aftur á völlinn í kvöld æfingaleik með Val gegn ÍA.
Hún gerði tvö mörk í 5-0 sigri. Mögnuð endurkoma hjá framherjanum öfluga og mikill liðsstyrkur fyrir Val fyrir komandi tímabil.
Hún á 192 mörk í 126 leikjum í efstu deild á Íslandi .
Svona gera bara sigurvegarar, eftir 18 mánaða fjarveru sökum meiðsla snéri hún aftur í kvöld og setti 2 mörk. Já ég er að tala um Margréti Láru Viðarsdóttur. Valur -ÍA 5-0. @Valurfotbolti @Fotboltinet @433_is @VisirSport @mblsport @FrettSport
— E.Börkur Edvards (@borkur_e) December 10, 2018
Athugasemdir