Helena Ósk Hálfdánardóttir skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við FH.
Helena er fædd árið 2001 og á 38 leiki að baki og 4 mörk í efstu deild kvenna.
Hún hefur leikið glimrandi vel með yngri landsliðum Íslands og hefur spilað stóra rullu í FH-liðinu.
Hún gerði nýjan tveggja ára samning við FH í gær og leikur því með liðinu í Inkasso-deildinni næsta sumar.
Hún á 14 landsleiki að baki með U17 og U19 ára landsliðum Íslands og gert 2 mörk í þeim.
Athugasemdir