Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 11. desember 2018 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lenglet ver Dembele - „Ekki viss um að það eigi að refsa honum"
Ousmane Dembele í leik með Barcelona
Ousmane Dembele í leik með Barcelona
Mynd: Getty Images
Clement Lenglet, leikmaður Barcelona á Spáni, er ekki viss um að það eigi að refsa Ousmane Dembele, liðsfélaga hans hjá Barcelona, fyrir að mæta of seint á æfingu.

Dembele, sem gekk til liðs við Barcelona í ágúst á síðasta ári frá Borussia Dortmund, átti erfitt með að komast inn í liðið þegar hann kom fyrst en hefur undanfarið verið að bæta frammistöðu sína og vinna sér sæti í liðinu.

Hann mætti þó tveimur tímum of seint á æfingu á dögunum og verður ekki með Barcelona gegn Tottenham eftir því sem fjölmiðlar komast næst.

Lenglet, liðsfélagi Dembele hjá Barcelon, er ekki viss um þetta séu rétt viðbrögð hjá Börsungum.

„Ég veit ekki mikið um það sem er í gangi hjá honum en ég veit að hann er að gera frábæra hluti á vellinum," sagði Lenglet.

„Ég veit ekki hvort refsing sé það rétta í stöðunni núna en þið verðið að spyrja fólkið sem er með völdin því ég er ekki viss um að það eigi að refsa honum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner