Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 11. desember 2018 09:30
Magnús Már Einarsson
Öryggisverðir náðu í Dembele - Enn og aftur seinn
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: Getty Images
Öryggisverðir frá Barcelona fóru heim til Ousmane Dembele og náðu í hann fyrir æfingu liðsins á sunnudaginn.

Dembele spilaði í 4-0 sigri á Espanyol á laugardaginn en hann mætti síðan tveimur tímum of seint á æfingu.

Barcelona hefur haft áhyggjur af líferni Dembele utan vallar en kantmaðurinn hefur ítrekað mætt of seint á æfingar á þessu tímabili.

Samkvæmt frétt ESPN hefur Barcelona áhyggjur af því hversu mikil áhrif æskuvinir Dembele hafa á líf hans en þeir eru minna að spá í því að hann sé atvinnumaður í fótbolta.

Fyrr á þessu tímabili var sagt að Dembele hefði misst af æfingu hjá Barcelona þar sem hann gleymdi sér þegar hann var að spila tölvuleik heima hjá sér.
Athugasemdir
banner
banner
banner