Gamla Liverpool goðsögnin Ian Rush sagði í einkaviðtali við Fótbolta.net að hann ætli ekki að spila með welska liðinu TNS gegn Liverpool í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en liðin mætast á þriðjudag í fyrri leik liðanna. Rush hafði verið boðið að taka þátt í leiknum en stjórnarformaður TNS er góður vinur hans.
,,Ég var beðinn um að spila en ég held að ég muni ekki spila. Nú er kominn tími til að einhver annar fái tækifæri," sagði Rush við Fótbolta.net.
,,Það hefði verið gaman að koma inná í síðustu tíu mínúturnar ef það væri uppselt Anfield og finna viðtökurnar frá stuðningsmönnunum en ég held ég muni horfa frekar en spila. Ég mun ekki spila leikinn en ég hef að vísu ekki sagt nei við boðinu."
,,Þetta hefði verið frábært fyrir mig en ég held að það sé bara sanngjarnt strákana hjá TNS sem hafa komist í Evrópukeppnina að fá að spila því þeir munu aldrei aftur fá það tækifæri að spila fyrir fullu húsi á Anfield.”
Við ræddum einnnig við Rush um TNS liðið og spurðum hvort ekki væri formsatriði fyrir Liverpool að komast áfram með miklum markamun?
,,Ég veit það ekki því Liverpool eru bara að koma aftur eftir sumarfrí og eru ekki komnir í fullt form. Ef þú ætlar að spila gegn Liverpool þá er þetta rétti tíminn til að spila gegn þeim. TNS hafa nú æft í fimm til sex vikur og hafa spilað leiki svo þeir eru líklega í toppformi. Liverpool eru svo bara að byrja.”
,,Ég sé engin vandmál fyrir Liverpool en held að þetta verði ekki eins auðvelt og menn telja. Liverpool verða að vinna og ef þeir vinna með einu eða tveimur mörkum þá er það í lagi en ef þeir vinna með sjö eða átta mörkum þá segja menn að þess sé vænst af þeim. Ég held að TNS muni veita þeim mótstöðu. En Liverpool ætti að vinna þetta.”


