mið 12. desember 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
Darian Powell í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Selfoss hefur samið við bandaríska framherjann Darian Powell fyrir komandi keppnistímabil í Pepsi-deild kvenna.

Powell er 24 ára gömul og lék með sterku liði Marquette University í bandaríska háskólaboltanum.

„Ég er búinn að fylgjast með henni síðustu tvö ár og tel að hún muni henta okkar leikskipulagi vel. Hún kemur úr háskólaliði sem spilar ekkert ósvipaðan bolta og við," segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.

„Hún gerði gott mót þar og ég tel að hún muni pluma sig vel hjá okkur. Hún er mikill markaskorari, fljót og góð á boltann og ég hlakka mikið til að vinna með henni."

Á myndinni má sjá Darian skrifa undir hjá Selfyssingum.

Komnar:
Darian Powell frá Bandaríkjunum
Farnar:
Alexis Kiehl
Allyson Haran
Dagný Rún Gísladóttir
Eyrún Gautadóttir
Írena Gestsdóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner