Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. desember 2018 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rose: Pochettino á skilið að vera orðaður við Real og Man Utd
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino stjóri Tottenham er talinn til allra bestu þjálfara heims og hefur verið orðaður við stjórastöðurnar hjá Manchester United, Chelsea og aðallega Real Madrid.

Pochettino er gríðarlega mikils metinn hjá Tottenham og skrifaði undir fimm ára samning við félagið í maí.

Danny Rose, vinstri bakvörður Tottenham, telur félagið vera ótrúlega heppið að hafa mann eins og Pochettino innanborðs.

„Það sem hann hefur gert á fjórum eða fimm árum hérna er stórkostlegt. Öll liðin í kringum okkur hafa eytt meiri pening en við og við keyptum engan leikmann í sumar og munum líklega ekki kaupa neinn í janúar," sagði Rose.

„Það segir mikið til um hversu góður hann er. Það er engin tilviljun að maður heyrir orðróma um að Real Madrid og Man Utd vilji hann á hverjum degi. Það er nákvæmlega það lof sem hann á skilið."

Tottenham komst upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar í annað sinn í röð eftir 1-1 jafntefli gegn Barcelona á þriðjudagskvöldið.

„Hann hefur breytt ímynd félagsins útávið og innávið. Við höfum meiri trú á sjálfum okkur gegn stærstu liðunum og þau bera virðingu fyrir okkur. Við höfum náð í góð úrslit gegn stórveldum."
Athugasemdir
banner
banner
banner