Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. desember 2018 10:00
Elvar Geir Magnússon
Dembele bað liðsfélaga sína afsökunar
Ousmane Dembele, leikmaður Barcelona.
Ousmane Dembele, leikmaður Barcelona.
Mynd: Getty Images
Frakkinn Ousmane Dembele hefur ítrekað pirrað starfsmenn Barcelona á þessu tímabili vegna hegðunar sinnar utan vallar.

Hann skoraði í grannaslagnum gegn Espanyol síðasta laugardag en mætti svo of seint á æfingu daginn eftir. Hann skoraði svo aftur í jafnteflinu gegn Tottenham í Meistaradeildinni í vikunni

Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, hefur aðvarað leikmanninn unga og nú hafa fjölmiðlar sagt frá því sem átti sér stað á æfingasvæðinu í vikunni.

Dembele kallaði liðsfélaga sína til sín fyrir æfingu og báð þá afsökunar á hegðun sinni. Hann lofaði því að þetta myndi ekki koma fyrir aftur.

Ræða hans var stutt en fór vel í liðið og standa samherjar hans með honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner