Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. desember 2018 08:30
Arnar Helgi Magnússon
Gray hrósar Sterling fyrir að koma fram
Demarai Gray
Demarai Gray
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling varð fyrir kynþáttahatri frá örfáum stuðningsmönnum Chelsea í leik Manchester City og Chelsea síðustu helgi.

Eftir leikinn tjáði Sterling sig á samfélagsmiðlum og talaði um að það væri fjallað öðruvísi um "svarta" leikmenn heldur en "hvíta" leikmenn eins og hann orðaði sjálfur.

Demarai Gray, leikmaður Leicester City hefur nú stigið fram og hrósað Sterling fyrir þessi ummæli.

„Vænlegasta leiðin til þess að ná rasisma út úr íþróttum er að tala um vandamálið og það er nákvæmlega það sem að Sterling gerði," segir Gray.

„Ég virði og þakka Sterling fyrir að hafa gert þetta. Þetta er eina leiðin, hann hljómaði ekki leiðinlegur eða neikvæður. Hann kom þessu frábærlega frá sér."

Sjá einnig:
Sterling hjólar í fjölmiðla - Segir þá ýta undir rasisma

Athugasemdir
banner