Nürnberg 0 - 2 Wolfsburg
0-1 Daniel Ginczek ('58)
0-2 Josip Brekalo ('94)
0-1 Daniel Ginczek ('58)
0-2 Josip Brekalo ('94)
Nürnberg tók á móti Wolfsburg í fyrsta leik helgarinnar í þýska boltanum.
Staðan var markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik og gerði Daniel Ginczek fyrra mark leiksins þrettán mínútum eftir leikhlé.
Ginczek skoraði eftir frábæra sendingu frá Maximilian Arnold í afar einfaldri skyndisókn.
Heimamenn lögðu allt í sóknarleikinn undir lokin en fundu ekki netið og innsiglaði Josip Brekalo sigur gestanna eftir skyndisókn á lokasekúndunum.
Nürnberg er í fallsæti með ellefu stig eftir fimmtán umferðir. Wolfsburg er einu stigi frá Evrópusæti þrátt fyrir arfaslaka byrjun á tímabilinu.
Athugasemdir