Eric Dier verður frá næstu vikurnar eftir að hafa gengist undir aðgerð á dögunum þar sem að botnlangi hans var fjarlægður.
Var þessi ákvörðun tekin af læknateymi Tottenham eftir að hann hafði glímt við mikinn sársauka síðustu daga.
Var þessi ákvörðun tekin af læknateymi Tottenham eftir að hann hafði glímt við mikinn sársauka síðustu daga.
Endurhæfing Dier er nú þegar hafin en hann mætir til æfinga aftur um miðjan janúar.
Dier er búinn að spila nítján leiki með Tottenham á tímabilinu, í öllum keppnum. Hann er búinn að skora tvö mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Oliver Skipp, átján ára enskur miðjumaður var í byrjunarliði Tottenham gegn Burnley í gær og þótti standa sig vel. Ekki er ólíklegt að hann fái fleiri tækifæri með liðinu í fjarveru Dier.
📰 @ericdier has undergone surgery to remove his appendix.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) December 16, 2018
He will now undergo a period of recovery before commencing rehabilitation and it is expected he will return to training with the squad in January.
Athugasemdir