Zlatan Ibrahimovic hefur gefið sterklega í skyn að hann verði áfram hjá Los Angeles Galaxy á næsta tímabili.
Zlatan kom af krafti inn í MLS deildina í ár þegar hann skoraði 22 mörk í 27 leikjum með LA Galaxy.
Undanfarið hefur Zlatan verið orðaður við sín fyrrum félög AC Milan og Manchester United en hann virðist ekki vera að fara neitt.

AC Milan útilokaði að fá Zlatan í síðustu viku og þessi 37 ára gamli framherji birti skilaboð á Twitter í dag sem benda til þess að hann verði áfram í Bandaríkjunum.
Hér að neðan má sjá færslu Zlatan.
MLZ Im not done with you yet pic.twitter.com/1F68siOV16
— Zlatan Ibrahimović (@Ibra_official) December 17, 2018
Athugasemdir