Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 18. desember 2018 11:53
Magnús Már Einarsson
Mourinho var rekinn á fundi fyrir æfingu í morgun
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, fékk að vita á fundi í morgun að hann væri rekinn frá félaginu.

Mourinho mætti á æfingasvæði United um klukkan 9 í morgun og skömum síðar fékk hann að vita að hann væri rekinn.

Ed Woodward, framkvæmdastjóri United, mætti á Carrington æfingasvæðið til að funda með Mourinho og tilkynna honum tíðindin.

Glazer fjölskyldan á Manchester United og eftir símtal við Woodward seint í gærkvöldi var ákveðið að reka Mourinho.

Manchester United leitar nú að stjóra út tímabilið en nýr stjóri mun síðan taka við til frambúðar næsta sumar.

Sjá einnig:
Mourinho rekinn frá Manchester United (Staðfest)
Carrick stýrir æfingum næstu dagana
Nýr stjóri tekur við Man Utd í dag eða á morgun
Twitter um Mourinho - Ég kemst í hátíðarskap
Neville vill að Pochettino taki við Manchester United
Mourinho fær rosalegan starfslokasamning
Pogba birti mynd eftir Mourinho frétt - Eyddi henni strax

Carrick og Zidane líklegastir til Man Utd samkvæmt veðbönkum


Álitsgjafar svara - Hver á að taka við Manchester United?

Athugasemdir
banner
banner